Stefna og hlutverk
Í allri þjónustu er lögð er áhersla á gildi fagmennsku, jafnræðis, samvinnu, virðingar, þekkingar og öryggis.
Samskipti sem byggja á trúnaði og stuðningi við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra er mikilvægur þáttur í starfsemi Barnaspítala Hringsins.
Veitt er fagleg og fjölskyldumiðuð þjónusta, þar sem vellíðan og þarfir skjólstæðinganna eru hafðar að leiðarljósi.
Hlutverk Barnaspítala Hringsins
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á Íslandi. Á Barnaspítalanum er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar. Þjónustan beinist einnig að andlegum og félagslegum þörfum skjólstæðinganna og velferð fjölskyldunnar.
Starfsfólk Barnaspítala Hringsins hefur mikinn faglegan metnað og ber fyrir brjósti velferð barna og fjölskyldna í landinu. Með fjölbreyttri rannsóknarstarfsemi og símenntun tryggir starfsfólk spítalans það að nýjasta þekking á sviði heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga sé ávallt til staðar í landinu.
Barnaspítalinn er hluti af háskólasjúkrahúsi og annast grunn- og framhaldsmenntun heilbrigðisstétta hvað varðar heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga. Spítalinn er einnig bakhjarl annarra íslenskra stofnana sem veita börnum og unglingum þessa þjónustu.
Síðast breytt: 17.07.2009 10:38