Réttindi sjúklinga
Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er barn hver sá einstaklingur sem ekki hefur náð 18 ára aldri. Á Barnaspítalanum er því veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri.
Við skipulag á starfsemi Barnaspítalans er tekið mið af stöðlum NOBAB (Nordisk förening för sjuka barns behov) fyrir börn á sjúkrahúsum. Þar kemur m.a. fram að barn á rétt á að hafa foreldra eða einhvern nákominn hjá sér meðan á sjúkrahúsdvöl stendur, að barn á að liggja á deild með öðrum börnum en ekki á deild með fullorðnum og að umgangast skal barn með virðingu og skilningi og virða friðhelgi einkalífs þess.
Á Barnaspítalanum er lögð rík áhersla á að réttindi sjúklinga séu virt í hvívetna. Allir landsmenn eiga rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita á hverjum tíma. Heilbrigðisþjónusta sem fólk hefur aðgang að á að vera sambærileg fyrir alla. Öll mismunun vegna kynferðis, tungu, trúarbragða, skoðana, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu er óheimil.
Mikilvægt er að sjúklingar og aðstandendur gæti þagmælsku um málefni annarra sjúklinga sem þeir kunna að fá vitneskju um, heyra eða sjá á Barnaspítalanum.
Þagnarskylda starfsfólks
Allt starfsfólk og nemendur heilbrigðisþjónustunnar er bundið þagnarskyldu og farið er með málefni sjúklinga af fyllsta trúnaði. Starfsfólki Barnaspítalans ber að gæta fyllstu þagmælsku um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum.
Landspítali er háskólasjúkrahús og nemendur í heilbrigðisfræðum og tengdum greinum stunda hluta af námi sínu á spítalanum. Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga og eru ávallt á ábyrgð og undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.
Vinsamlegast athugið að sjúkrahúsið getur ekki borið ábyrgð á peningum eða öðrum verðmætum svo sem, símum, tölvum o.fl. sem sjúklingar eða aðstandendur hafa meðferðis.