Innlagnir / Biðlisti

Umsjón biðlista er í höndum hjúkrunarfræðinga. Innlögn er skipulögð þegar innlagnarbeiðni hefur borist frá viðkomandi barnalækni. Hringt er í foreldra þegar dagsetning í fyrirhugaða rannsókn eða aðgerð liggur fyrir, veitt fræðsla um undirbúning rannsókna og eða aðgerð sem fyrirhuguð er.

Einnig geta foreldrar hringt virka daga kl. 9-14, og fengið upplýsingar um biðtíma.

Markmiðið er:
Að veita markvissa og góða þjónustu.
Leitast við að hringja í foreldra með góðum fyrirvara.
Koma í veg fyrir óþarfa biðtíma.
Koma til móts við óöryggi og kvíða með fræðslu fyrir innlögn.

Umsjón með biðlista og innköllunum hafa:
Rósa Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur,
sími 543 3032
netfang rosaei@landspitali.is  

Sigríður Hulda Njálsdóttir hjúkrunarfræðingur,
sími 543 3031
netfang shn@landspitali.is  

Flýtileiðir:

Tilvísunareyðublað á Göngudeild Barnaspítala Hringsins vegna offitu barna >>

Síðast breytt: 13.01.2012 13:49
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli