![]() | Fyrir hverja?Átröskunarteymið er sérhæft teymi göngudeildar sem hefur fyrstu aðkomu að málum þar sem líklegt er að um átröskun sé að ræða hjá barni eða unglingi.Hvernig er best að ná í okkur?Teymið er staðsett að Dalbraut 12, 105 Reykjavík og það er opið alla virka daga frá 08:00 – 16:00. |
Hvað gerum við?Átröskunarteymið veitir bæði greiningu og meðferð. Meðferðin miðar að því að hjálpa barni/unglingi að takast á við veikindin með stuðningi foreldra og fagfólks. Lögð er áhersla á að barnið og foreldrarnir læri nýjar og betri leiðir til að takast á við átröskunina og fái betri innsýn í hvaða þættir hindra bata. Leitast er við að efla sjálfsmynd, líkamsmynd, félagslega færni og samskipti í fjölskyldu í því skyni að bæta líðan og lífsgæði til lengri tíma. | Hver erum við?Anna Sigríður Pálsdóttir, deildarlæknirBertha María Ársælsdóttir, næringarfræðingur Dagbjörg Sigurðardóttir, sérfræðingur Guðrún Ásgeirsdóttir, sálfræðingur Hrefna K. Óskarsdóttir, iðjuþjálfi Kristín Einarsdóttir, félagsráðgjafi Margrét Gísladóttir, hjúkrunarfræðingur Sólveig Katrín Jónsdóttir, listmeðferðarfræðingur |