Útboð og verðfyrirspurnir
Velkomin á svæði innkaupadeildar
Þessu svæði er ætlað að vera til stuðnings starfsemi deildarinnar hvað varðar útboð, verðfyrirspurnir og annað það sem að innkaupum snýr og ástæða þykir til að koma á framfæri hverju sinni.
Svæðið verður uppfært einu sinni í mánuði og miðast við 15. hvern mánaðar, eða fyrsta virka dag eftir það. Í sérstökum tilvikum verða settar inn nýjar upplýsingar 1. hvern mánaðar.
Útboð á vegum Ríkiskaupa eru listuð upp sérstaklega með tengingu á vef Ríkiskaupa þar sem nálgast má öll gögn er þau varða.
Verðfyrirspurnir á vegum Landspítala eru listuð upp sérstaklega og á svæðinu má nálgast þau gögn er verðfyrirspurnina varða. Almenna reglan skal vera sú að tilboð eftir verðfyrirspurn eru opnuð 2 - 3 vikum eftir auglýsingu og mun opnunartími koma fram í gögnum og á svæðinu. Búast má við að einhverjar auglýsingar og gögn verði á svæðinu þó svo að opnun hafi farið fram ef auglýsingartíminn er styttri en 4 vikur.
Niðurstöður tilboða og verðfyrirspurna munu einnig vera á svæðinu frá 15. til 15. hvers mánaðar.