Líknarráðgjafateymi
Tilgangur líknarmeðferðar er að bæta lífsgæði sjúklinga sem eru með ólæknandi lífshættulegan sjúkdóm og fjölskyldna þeirra. Meðferðin felst í því að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálrænni, félagslegri og andlegri þjáningu.*Líknarmeðferð á ekki eingöngu við á lokastigum veikinda heldur einnig snemma í veikindaferlinu samhliða annarri meðferð. Líknin á alltaf við en þegar vægi meðferðar til lækninga minnkar eykst vægi líknandi meðferðar. Í líknarmeðferð er lögð áhersla á meðferð einkenna og að samhæfa umönnun líkamlegra, sálrænna, félagslegra og trúarlegra þátta. Í meðferðinni er lögð áhersla á að hjálpa sjúklingnum á markvissan hátt til að lifa eins innihaldsríku lífi og unnt er fram í andlátið og veita fjölskyldunni stuðning til sjálfsbjargar í sjúkdómsferlinu og sorginni. Hlutverk líknarráðgjafateymis - Fræðslubæklingur (pdf)
*Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, 2002
Meginhlutverk líknarteymisins er að gefa ráð um meðferð einkenna, sálfélagslegan stuðning og umönnun einstaklinga sem eru með lífshættulegan, ólæknandi sjúkdóm á hvaða stigi sem er. Ráðgjöfin nær einnig til fjölskyldunnar.
-Veita ráðgjöf og aðstoð við mat og meðferð líkamlegra einkenna
-Aðstoða við að sinna sálrænum einkennum sem koma fram í veikindum og sorgarferli
-Aðstoða við að sinna félagslegum þörfum, t.d. samskiptum innan fjölskyldunnar og almennum félagslegum réttindum
-Aðstoða við að sinna andlegum, trúarlegum og tilvistarlegum þörfum.
-Veita ráðgjöf og aðstoð við og eftir andlát
-Styðja og aðstoða starfsfólk sem vinnur við umönnun deyjandi sjúklinga
-Veita ráðgjöf við útskrift og vera tengiliður við líknardeildir og þjónustu í heimahúsum
-Standa fyrir og taka þátt í fræðslu til starfsfólks, nemenda og almennings um líknandi meðferð.-
-Þróa og stuðla að samræmdri notkun leiðbeininga um líknandi meðferð og umönnun deyjandi sjúklinga
Markhópur líknarráðgjafateymis
Sjúklingar með lífshættulega, ólæknandi sjúkdóma á hvaða sjúkdómsstigi sem er, fjölskyldur þeirra og starfsfólk. Sjúklingar þurfa ekki að vera skráðir í líknandi meðferð. Þeir sem teymið vitjar fá nafnspjald og geta haft samband sjálfir ef þeir óska.
Beiðnir
Allar fagstéttir geta leitað til teymisins.
Hjúkrunarfræðingur og/eða læknir teymisins meta beiðnina innan sólarhrings.
Svör frá teyminu eru bæði munnleg og skráð í Sögukerfið. Teymið hittist á vikulegum fundum.
Starfsmenn líknarráðgjafateymis
Arndís Jónsdóttir, sérfræðingur í líknandi hjúkrunarmeðferð, sími 825 5115, arndisjo@landspitali.is
Kristín Lára Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, sími 825 5114, kristinl@landspitali.is
Aðrir í líknarráðgjafateyminu
Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur
Jón Eyjólfur Jónsson yfirlæknir, öldrunarlækningadeild
Nanna Friðriksdóttir, sérfræðingur í hjúkrun krabbameinssjúklinga, formaður
Sigurlaug Eyjólfsdóttir félagsráðgjafi
Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar og heimahlynningar í Kópavogi
Áhersla er lögð á markvissa samvinnu við þá sem vinna að líknarmeðferð