Sagan
Landspítali
Í lögum um heilbrigðisþjónustu 2007 nr. 40 27. mars er fjallað um sérhæfða heilbrigðisþjónustu í V. kafla. Þar er í fyrsta skipti í lögum fjallað um þetta nýja háskólasjúkrahús. Tuttugasta greinin er um Landspítala, sem heitir nú svo:
"Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Hann veitir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almanna sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins."
Með gildistöku nýrra heilbrigðislaga breyttist stjórnkerfi spítalans. Það fólst meðal annars í því að stjórnarnefnd var lögð niður en hún hafði verið í stjórnskipulagi landssjúkrahússins frá árinu 1935. Siðasti fundur stjórnarnefndinnar, undir forystu Birnu Kr. Svavardóttur hjúkrunarforstjóra, var haldinn 30. ágúst 2007.
Forstjórar Landspítala frá 1999:
Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, frá 1. október 2010.
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Akers háskólasjúkrahússins í Osló, frá 1.september 2008 til 1. júlí 2010.
Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, frá 1. maí 1999 til 31. mars 2008.
Áfangar í spítalaþjónustu á Íslandi