Þjónusta
Á Fíknigeðdeild Landspítala er rekin sérhæfð þjónusta fyrir einstaklinga þar sem geðraskanir og misnotkun vímuefna fara saman. Við deildina starfar breiður hópur fagfólks á þremur einingum sem vinna náið saman. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun og teymisvinnu.
MóttökudeildirÁ móttökudeildum er tekið á móti geðsjúkum sem þurfa á bráðainnlögn að halda. Innlagnir á deildirnar fara í gegnum bráðaþjónustu eða lækna deildanna. Meðferðin er fjölþætt og sniðin að þörfum sjúklinga og aðstandenda þeirra eftir því sem unnt er á hverjum tíma. Lögð er áhersla á að greina líffræðilega, sálræna og félagslega þætti sem stuðla að veikindum og heilbrigði. Stefnt er að heildrænni þjónustu þar sem sjúklingur og fjölskylda hans eru upplýst um meðferðina og taka þátt í að efla heilbrigði sjúklinga eftir útskrift.
EndurhæfingEndurhæfing fólks með geðsjúkdóma fer fram á Kleppi og á Endurhæfingu LR á Laugarásvegi 71. Endurhæfing er samhæft, samfellt og markvisst ferli sem byggir á samvinnu milli notanda, fjölskyldu/aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks. Lögð er áhersla á að stuðla að auknum lífsgæðum hjá fólki og hvetja til ábyrgðar á eigin hegðun og lífsstíl. Meðferðin byggist m.a. á fræðslu og stuðningi til að auka virkni og ábyrgð fólks til að ná markmiðum sínum. Þátttaka í samfélaginu, valfrelsi og leið til að þroskast við breyttar aðstæður eru mikilvæg atriði í endurhæfingu geðsviðs.
Öryggis- og réttargeðþjónustaSérhæfð geðdeild á Kleppi vinnur að þróun meðferðar fyrir alvarlega geðsjúka einstaklinga og sem þurfa á langtímameðferð að halda. Sérhæfð réttargeðdeild einnig á Kleppi sinnir ósakhæfum geðsjúkum einstaklingum og endurhæfir þá aftur út í samfélagið. Eftirfylgd réttar- og öryggisþjónustu er verkefni sem verið er að þróa í samræmi við lagalega skyldu yfirlæknis réttarþjónustunnar að bera ábyrgð á eftirfylgd einstaklinga sem dæmdir hafa verið í meðferð í ákveðinn tíma í kjölfar sjúkrahúsvistar á réttargeðdeild
Iðjuþjálfun á geðsviði
Hvar er þjónustan staðsett?